Áríðandi tilkynning

Það rignir yfir mig fyrirspurnum um hvernig menn skuli bera sig að með að skrá sig í haustferðirnar til Sýrlands/Líbanons í byrjun september og Jemen/Jórdaníu frá 28.sept. og er því einfaldlega til að svara að menn senda mér tölvupóst með nafni, kennitölu, símanúmeri og heimilisfangi. Látið endilega netfang fylgja. Svo verðum við í sambandi þegar líða tekur á vorið til að hnýta lausa enda, ákveða með greiðslur og þess háttar. Það er tekið á móti pöntunum í báðar ferðirnar til maíloka en þá má vænta að eftir það verði ekki hægt að bæta við