Skráning í ferðir

Allmargar fyrirspurnir hafa borist um hvenær dagsetning verði tilbúin á ferð til Egyptalands í mars 2005. Því er til að svara að það verður naumast fyrr en síðla maí en vonandi ekki síðar.
Áhugasamir ferðalangar sem hafa hug á ferðum til Sýrlands/Líbanons og Jemen/Jórdaníu vorið 2005 hafa sömuleiðis haft samband til að forvitnast um hvenær dagsetningar verði birtar á vorferðir 2005. Að öllum líkindum verða þær ekki birtar fyrr en síðsumars. En sendið endilega póst með fyrirspurnum og upplýsingar verða birtar hér á síðunni jafnskjótt og þær eru tilbúnar.